Hólmatröð 3A
Hrafnagilshverfi · Eyjafjarðarsveit

Hólmatröð 3A

Nýtt og bjart raðhús í kyrrlátu hverfi. Skólinn, leikskólinn og sundlaugin eru í þriggja mínútna göngufæri og það tekur um tólf mínútur að keyra til Akureyrar.

Raðhúsið við Hólmatröð úr lofti, með fjöll Eyjafjarðar í baksýn
Ný bygging 2025 · Laus fljótlega
150,3m²Samtals birt stærð
3Svefnherbergi
30,5m²Innbyggður bílskúr
14,4m²Garðhýsi með gólfhita
12mín.Akstur til Akureyrar
Eyjafjörður

Sveitin, en samt í bænum

Hrafnagil stendur í Eyjafirði, rétt sunnan við Akureyri. Verslanir, vinnustaðir og flugvöllurinn eru í stuttri akstursfjarlægð.

Hrafnagilshverfi úr lofti, með húsinu, skólanum og sundlauginni
Hólmatröð 3A
Grunnskóli og leikskóli
Sundlaug
Íþróttahús
3 mín. ganga
Hrafnagilshverfi

Þrjár mínútur í skólann

Grunnskólinn, leikskólinn, sundlaugin og íþróttahúsið eru öll í um þriggja mínútna göngufæri frá útidyrunum. Enginn gegnumakstur er um götuna, og börnin geta gengið sjálf í skólann.

Íbúðin

Gengið inn

Björt fjögurra herbergja íbúð, 105,4 m², með innbyggðum bílskúr og sérstöku garðhýsi á lóðinni. Allt á einni hæð og með gólfhita í öllum rýmum.

Það sem fylgir

Gólfhiti í öllum rýmum

Líka í bílskúr og garðhýsi, með nemum í hverju rými.

Snjóbræðsla

Lokað snjóbræðslukerfi í bílaplani og verönd.

Góð hljóðvist

Hljóðvistardúkur í uppteknu lofti alrýmis, með innfelldri lýsingu.

Plejd ljósastýring

Ljósum stýrt úr síma eða spjaldtölvu.

Klárt fyrir heitan pott

Lagnir fyrir vatn og rafmagn á verönd.

Rafbílahleðsla

Ídráttarrör fyrir hleðslustöð við sorptunnuskýli.

Ljósleiðari

Kominn inn í töflu, tilbúinn fyrir þína þjónustuveitu.

Vandaður frágangur

Viking gluggar og hurðir, álklæðning og rafdrifin bílskúrshurð.

Hrafnagilsskóli og sundlaugin úr lofti
Ung fjölskylda

Að flytja heim

Skólinn og leikskólinn handan við hornið, sundlaugin í næstu götu og frjálsræði sveitarinnar, en samt stutt í bæinn og vinnuna.

Björt stofa með rennihurð út á verönd
Næsta æviskeið

Rólegt og viðhaldslítið

Nýtt hús á einni hæð, enginn gegnumakstur og snjóbræðsla í planinu. Garðhýsið nýtist sem gestaherbergi þegar barnabörnin koma.

Teikningar

Grunnmynd
Afstöðumynd lóðar

Upplýsingar

Ásett verð
104.900.000 kr.
Fasteignamat
67.700.000 kr.
Íbúð
105,4 m²
Bílskúr
30,5 m²
Garðhýsi
14,4 m²
Samtals
150,3 m²
Herbergi
4, þar af 3 svefnherbergi
Byggingarár
2025
Tegund
Raðhús, sérinngangur
Fasteignanúmer
252-8969
Afhending
Fljótlega
Bóka skoðun

Komdu og sjáðu Hólmatröð

Hafðu samband við Kasa fasteignir til að bóka skoðun eða fá söluyfirlit. Aðeins ein íbúð er óseld í húsinu.

Kasa fasteignir
Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
461 2010
Hringja í Kasa